Mental resilience Andleg þrautseigja Leiðtogafærni ástand

Leiðtogafærni hefst á innra ástandi

Stjórnaðu ástandi þínu, skapaðu jafnvægi í taugakerfinu og opnaðu hjartað, til að styrkja hugsun, þrautseigju og hafa jákvæð áhrif í kringum þig

Hver er ég?

Ég er sálfræðingur með doktor í lífeðlislegri sálfræði.

Ég kenni leiðtogum, teymum og einstaklingum að leiða með taugakerfi í jafnvægi og opnu hjarta, að byggja upp innri stöðugleika sem eykur skýra hugsun, tilfinningalegt jafnvægi, þrautseigju og mannlega tengingu, jafnvel undir álagi. Þegar við lærum að hafa áhrif á eigið lífeðlislegt ástand bætum við ekki aðeins eigin líðan og frammistöðu, heldur höfum við áhrif á tilfinningar og lífeðlisfræði annarra í kringum okkur.

Vinna mín byggir á rannsóknum úr lífeðlislegri sálfræði og taugavísindum, og ég er virk í rannsóknum á sviði lífeðlislegrar sálfræði, með áherslu á hjartsláttarbreytileika (HRV), stjórnun taugakerfis, seiglu og hugræna frammistöðu undir álagi.

Starfsferill minn spannar klínísk störf, lýðheilsu og stefnumótun í kerfum og aðstæðum þar sem álag er raunverulegt og ákvarðanir hafa áhrif. Ég hef m.a. gegnt leiðtogahlutverki í sálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar, verið yfirsálfræðingur á heilbrigðisstofnun, sálfræðingur hjá íslensku lögreglunni, sérfræðingur í lýðheilsu innan heilbrigðisráðuneytisins og sérfræðingur í geðrækt hjá embætti landlæknis.

Ég miðla þessari þekkingu bæði innan fagheimsins og til almennings, meðal annars á alþjóðlegum ráðstefnum í lífeðlislegri sálfræði og í TEDx erindi.

Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur leiðtogafærni psychophysiology lífeðlisleg sálfræði

Taktu stjórn á eigin ástandi

Ástand þitt skiptir máli. Ekki bara fyrir þig, heldur fyrir alla í kringum þig.
Ef þú vinnur með fólki, leiðir aðra, elur upp börn, styður skjólstæðinga eða vilt einfaldlega heilbrigðari sambönd, þá á þetta við þig. Þegar þú upplifir streitu, ert úr jafnvægi og orkulaus, hefur það áhrif á aðra í kringum þig. Þegar þú finnur fyrir ró, jarðtengingu og í umhyggju, hefur það eining áhrif á aðra. Ástand þitt verður hluti af umhverfinu.

Meira um þetta hér í TEDx erindi mínu ,,Why your well-being matters to everyone around you”.

Fræðsla, þjálfun og námskeið

Ég býð upp á vísindalega studda þjálfun sem styrkir taugakerfið, eykur streituþol og aðlögunarhæfni og skilar mælanlegum árangri, fyrir einstaklinga og teymi.

  • ,,Frábært erindi hjá Sigrúnu, fróðlegt og hagnýtt í senn!"

    Magnús Þór Gylfason, ráðgjafi hjá Samtök Iðnaðarins

  • ,,Skýr framsögn. Gaman og auðvelt að læra ný framandi hugtök. Fékk trú á HRV aftur, sérstaklega eftir að hafa heyrt um rannsókn á íslensku lögreglunni."

    Davíð Björn, CPO og Founder, Leviosa


  • ,,Róleg og yfirveguð.. einlæg og talar frá eigin reynslu"

    Aðalheiður Jensen
    Eigandi, Tilveran heilsusetur

  • ,,Þetta hentar öllum!"

    Klara, Content and Translator hjá IKEA

Fræðsla og námskeið

Aðlögunarfærni: HRV og frammistaða í krefjandi umhverfi

Rannsóknir sýna að lífeðlisleg aðlögunarhæfni, mæld með HRV, tengist betri ákvarðanatöku, einbeitingu og streituþoli. Við þjálfum taugakerfið til að viðhalda skýrleika og árangri þegar mest reynir á.

Hjartaöndun og HRV: Taktu stjórn á eigin ástandi

Tilfinningar og lífeðlislegt ástand smitast, á vinnustað og heimili. Með hjartaöndun og HRV-þjálfun lærir þú að styrkja ró, orku og innri stjórn með mælanlegum aðferðum.

Andleg þrautseigja og taugakerfið

Þrautseigja byggir á getu taugakerfisins til að jafna sig og aðlagast. Við þjálfum streitustjórnun, endurheimt og tilfinningastöðugleika svo þú og teymið þitt, haldið jafnvægi og árangri í breytilegu umhverfi.

Þjálfaðu taugakerfið þitt

Hér er aðgangur að verkfæri sem er aðgengilegur fyrir þá sem taka þátt í fræðslu eða þjálfun hjá mér

Hafðu samband

Endilega hafðu samband hér fyrir neðan ef þú hefur áhuga á að bóka fyrirlestur, fund eða heyra meira um störf mín og ég mun svara þér eins fljótt og auðið er.

Young woman in bright blue athletic jacket looking at her smartwatch outdoors during sunrise or sunset with another woman in the background.