Kynntu þér þjónustuna
Kynntu þér þjónustuna mína og við sjáum hvort og hvernig við getum tekið næsta skref saman.
Fræðsla, þjálfun og námskeið
Ég býð upp á vísindalega studda þjálfun sem styrkir taugakerfið, eykur streituþol og aðlögunarhæfni og skilar mælanlegum árangri, fyrir einstaklinga og teymi.
-
Í síbreytilegu starfsumhverfi er aðlögunarfærni lykill að árangri. Rannsóknir sýna að lífeðlislegur sveigjanleiki, mældur með HRV, tengist betri ákvarðanatöku, tilfinningastjórn, einbeitingu og þrautseigju undir álagi.
Í námskeiðinu þjálfa þátttakendur streitustjórnun, sjálfvirka taugakerfisstjórn og hraðari endurheimt. Fyrirtæki fá aukna frammistöðu og minni kulnun; starfsfólk fær meiri stöðugleika, fókus og öryggi í krefjandi aðstæðum.
-
Við erum bæði líffræðilega og félagslega „tengd til að hugsa um aðra“. Rannsóknir sýna að tilfinningar okkar og lífeðlislegt ástand hafa bein áhrif á fólkið í kringum okkur, á börn, teymi og sambönd. En þegar við gleymum eigin endurheimt verður umhyggjan ósjálfbær.
Í þessu námskeiði læra þátttakendur hjartaöndun og HRV-þjálfun sem styrkir parasympatíska virkni, eykur tilfinningastjórn og hraðar endurheimt eftir álag. Ávinningurinn er tvíþættur: meiri innri ró og orka fyrir einstaklinginn og jákvæð, smitandi áhrif á vinnustað, fjölskyldu og samfélag.
-
Andleg þrautseigja er ekki bara hugarfar, hún byggir á lífeðlisfræðilegri getu taugakerfisins til að aðlagast álagi og jafna sig hratt. Rannsóknir sýna að hærri HRV og virk parasympatísk stjórnun tengjast betri streituþoli, skýrari ákvarðanatöku og minni kulnun.
Í þessu námskeiði læra þátttakendur að skilja eigin streituviðbrögð og þjálfa endurheimt, tilfinningastjórn og innri stöðugleika með markvissum aðferðum. Ávinningurinn er sterkari einstaklingur, og teymi sem heldur jafnvægi, einbeitingu og árangri þegar mest reynir á
Sálrænn styrkur fyrir ungmenni - Rafrænt námskeið
Rafrænt námskeið sem sameinar vikulega rauntímatíma, hagnýt verkfæri og stutt myndbönd á milli tíma sem styðja þig í að æfa og dýpka færnina.
Allir tímar eru teknir upp, þannig að þú getur einnig tekið þátt í endurspili þegar þér hentar.
Í lok námskeiðsins hafa þátttakendur öðlast færni til að skilja tilfinningar sínar og innra ástand og hafa áhrif á það á uppbyggilegan hátt, óháð aðstæðum.
Í lok námskeiðsins munt þú geta:
• skilið betur tilfinningar þínar og taugakerfið þitt
• haft áhrif á líðan þína með einföldum og hagnýtum verkfærum
• verið minna háð/ur skoðunum og áliti annarra
• upplifað meira öryggi og tilfinningu fyrir að tilheyra í styðjandi samfélagi
Skráðu þig hér fyrir neðan
Takmörkuð pláss, hefst 6. maí kl. 15:00
Að upplifa innra öryggi í síbreytilegu umhverfi
Skráning hér:
Fræðsla og námskeið
Aðlögunarfærni: HRV og frammistaða í krefjandi umhverfi
Rannsóknir sýna að lífeðlisleg aðlögunarhæfni, mæld með HRV, tengist betri ákvarðanatöku, einbeitingu og streituþoli. Við þjálfum taugakerfið til að viðhalda skýrleika og árangri þegar mest reynir á.
Hjartaöndun og HRV: Taktu stjórn á eigin ástandi
Tilfinningar og lífeðlislegt ástand smitast, á vinnustað og heimili. Með hjartaöndun og HRV-þjálfun lærir þú að styrkja ró, orku og innri stjórn með mælanlegum aðferðum.
Andleg þrautseigja og taugakerfið
Þrautseigja byggir á getu taugakerfisins til að jafna sig og aðlagast. Við þjálfum streitustjórnun, endurheimt og tilfinningastöðugleika svo þú og teymið þitt, haldið jafnvægi og árangri í breytilegu umhverfi.