Að efla eigin sálræna styrk skráning á námskeið -

hefst 6. maí kl. 15:00 

Velkomin í skráningu á rafræna námskeiðið  Að efla eigin sálræna styrk  — 4 vikna ferðalag þar sem ungmenni læra að skilja líðan sína, finna meira innra öryggi og hafa áhrif á eigið ástand.

Námskeiðið hefst miðvikudaginn 6. maí kl. 15:00 og fer fram á netinu í formi vikulegra rauntímatíma, þar sem unnið er með efnið og verkfæri í sameiningu. Á milli tíma fá þátttakendur stutt myndbönd og æfingar til að styðja við lærdóminn.
Allir tímar eru teknir upp, þannig að hægt er að nálgast þá í endurspili ef ekki næst að mæta í beinni.

Á námskeiðinu fá þátttakendur:
• skýrari skilning á tilfinningum og taugakerfi
• einföld og gagnleg verkfæri til að róa sig og finna jafnvægi
• minni þörf fyrir staðfestingu utan frá
• tækifæri til að tilheyra í öruggu og styðjandi samfélagi

Námskeiðið er ætlað ungmennum á aldrinum 15–19 ára.

Verð: 29.000 kr.

Sérstakt kynningarverð fyrir fyrsta hóp – takmarkað pláss

Vinsamlegast fylltu út formið hér að neðan og við sendum þér greiðsluupplýsingar til að staðfesta skráning.

Um námskeiðahaldara: Námskeiðið er kennt af Dr. Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur, sálfræðingi með doktorsgráðu í lífeðlislegri sálfræði. Sigrún Þóra hefur unnið með taugakerfi og sálfræði og byggir kennslu sína á bæði rannsóknum og víðtækri reynslu úr starfi. Hún hefur starfað sem sálfræðingur hjá lögreglu, gegnt leiðtogahlutverki í sálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar og unnið sem sérfræðingur hjá heilrigðisráðuneytinu og embætti landlæknis. Sú reynsla mótar nálgun hennar á það sem raunverulega hjálpar, bæði undir álagi og í daglegu lífi.